Þá eru liðnir 3 mánuðir síðan ég bloggaði síðast, og ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja... ýmislegt sem hefur á dagana drifið, og ekkert nema gott að frétta Hefur verið svolítið basl að setja inn myndir á þetta blogg en vona að það takist NÚNA!
Búin með 1.árið í lögfræði!! Jejj.. bara 4 eftir!
Það sem af er sumars er ég búin að vera mikið ''á ferð og flugi'', og líkar bara mjög vel í flugfreyjustarfinu.
Fór út í Hvallátur yfir helgi í byrjun júní, skrapp svo aðeins í flug til Köben á mánudeginum og fór svo aftur út í Hvallátur þri-fös. Náði þannig c.a.viku í Hvallátrum, þar sem er best í heimi . Vona að ég komist aftur í lok sumars.
Nokkrar myndir frá því í Hvallátrum í sumar...
Það var þrastahreiður inni í dúnhúsi. Ótrúlegt hvað ungarnir stækka hratt!! Myndin til vinstri var tekin á laugardegi en myndin til hægri á þriðjudegi þegar ég kom aftur út í Hvallátur. Enginn smá munur á þeim og eins og sést var einn unginn við það að detta úr hreiðrinu! Á miðvikudeginum voru svo allir ungarnir farnir...
Adda Hrund með ungana í fjöruferð
Allt að gerast í útungunarvélinni :)
Um síðustu helgi var ég í mjög skemmtilegri sumarbústaðaferð, s.k. stefnumótunarferð Lögréttu. Þetta var í Gljúfri, rétt fyrir utan Hveragerði og þar var heitur pottur og mikið stuð ...
Gæti skrifað hellings í viðbót en nenni því ekki .... Hafið það sem best í sumar og... ''live today like there is no tomorrow''... Chau Jamie Blond 006
30. júní 2007 klukkan 20:54
Drífa Friðriksdóttir 2 athugasemdir
Síðasti skóladagur var sl. föstudag og í kvöld var síðasti dagur á námskeiðinu fyrir páska. Mun samt hitta ''flugbekkinn'' minn aftur á morgun því við ætlum að hafa PARTÝ . Á sunnudaginn fór ég í reynsluflug #2 til Köben, og það var svona frekar fyndin flugferð!! Flugvélin sem við vorum á hafði verið í leigu hjá spænsku fyrirtæki sem heitir IBERIA. Alltaf í flugtaki og lendingu fór eitthvað endalaust danskt ávarp í gang sem þurfti voða trix til að stoppa! Langfyndnast var á leiðinni heim frá Köben þegar öryggismyndbandið átti að fara í gang. Það gerðist ekki heldur fór blessaða danska draslið aftur af stað og gall í flugvélinni: ''Velkommen om board hos IBERIA.....'' hehehe... svo var spólað á fullu:''ofj9e8r3948rhrfdnvidyg9aq84æowehf'' og þá kom '' Vi håber at I har haft en behagelig rejse, tak og på gensyn''... og ehmm já, við vorum ekki einusinni farin í loftið! tihihi En það var nú FYRSTI APRÍL þarna á sunnudaginn, þannig að þetta var bara alveg viðeigandi að hafa svona smá ''plat''. Svo var þarna hrikalega dónalegur flugdólgur, pía sem ældi og rússneskir perrar. Allt gekk samt mjög vel og ég hellti ekki kaffi á neinn!! jejjj Stuttu fyrir lendingu þá var ein hefðarfrúin á Saga sem vildi meira kaffi. Allt gott og blessað með það og ég fer inn í eldhús til að ná í kaffikönnuna sem þá reynist vera tóm. Þá fór ég að laga 1 stk. kaffibolla fyrir frúna, setti Nesquick kaffiduft í bolla og setti undir heitavatnskranann. EN, úr krananum kom ekki normal ''heitavatnsbuna'', heldur bara sonna blautt fruss! þannig að ég fékk ''Nesquick-kaffi-freknur'' á smettið, svaka smekklegt!! hehe... en æj iss það var auðvelt að þvo af.
Síðustu daga erum við búin að fara í ''security and emergency procedure'', rosa stuð, hlaupa upp stiga og láta sig húrra niður neyðarrennuna og í gær vorum við að tjalda upp björgunarbát. Kennarinn er líka mjög hress, svona ''brandarakall með leikræna hæfileika'' hehe. Væri alveg til í að poppa svona upp fyrirlestrana í lögfræðinni Í gær voru þau á námskeiði nr.1 að klára (*öfund*) og voru að spóka sig í uniforminu inni á kaffistofu. Þá kemur kennarinn okkar fram og horfir á Jónsa í uniforminu og segir: '' Neihh,hva'?!! núna ertu ekki Jónsi í svörtum fötum heldur Jónsi í BLÁUM fötum!'' jájá, eins og ég sagði, mikill brandarakall þarna á ferð...
Jæjamm, það er víst vissara að fara lesa veðréttinn! ÍÍíííha...
luv, 006
03. apríl 2007 klukkan 23:34
Drífa Friðriksdóttir 3 athugasemdir
Margra, margra mánaða ferðalagaleysi var bætt upp núna um helgina! Endalaust gaman, hihi Á föstudaginn fór ég í mitt fyrsta reynsluflug fyrir sumarið. Við vorum 4 saman úr námskeiðinu og fórum til London. Gekk bara ágætlega, er allavega mjög stolt að geta sagt frá því að hafa ekki hellt kaffi á neinn farþega . Leið samt alveg eins og bjána þarna með ''Saga Boutique'' bæklinginn. Ekki beint sölumanneskja hér á ferð... hehe Við fengum að vera inní flugstjórnarklefanum í flugtaki og lendingu og það mikið stuð og gott útsýni!! Fékk bara smá fiðring í magann, hehe... sérstaklega þegar við vorum að lenda á Heathrow!
Ég var komin heim úr London-fluginu um kl. 2 aðfaranótt laugardags. Skellti mér þá í sturtu, kláraði að pakka niður og keyrði svo í Hafnafjörðinn til Örnu sis sem skutlaði mér útá Leifstöð. Aftur í loftið kl. 07:15 til Köben á reunion! Var freeekar þreytt þarna um morguninn og sofnaði um leið og ég var sest í flugvélina. Pínu fyndið að vera farþegi u.þ.b. 6 klst. eftir að hafa verið að vinna í flugvél, hehe. Tók svo lestina frá Kastrup til Ellu í Malmö. Rosa gaman að sjá hana loksins eftir 3 ár! Var samt frekar sibbin ennþá þegar ég kom til hennar og lagði mig á meðan hún skrapp í klippingu. Svo skelltum við okkur á kaffihús og spjölluðum um heima og geima. Kl. sex var svo reunion-dinner með Expo genginu. Eftir matinn fórum við heim til Alex og Sayuri og horfðum á Expo vidjóið og video-klip frá Siggu en hún komst ekki því hún er í Sapporo. Á sunnudeginum var brunch hjá Henrik og Kristinu í Kaupmannahöfn. Það hittist svo óskemmtilega á að það var verið að skipta yfir í sumartíma aðfaranótt sunnudags. Þegar klukkan var 2 varð hún 3!! hefði alveg vilja sofa þennan klukkutíma sem fór bókstaflega ekki í neitt!! hehe.. Vaknaði rúmlega 7 og tók svo lestina til Köben. Eftir brunchið fórum við nokkur saman í siglingu í Nyhavn. Það var alveg sól og blíða, 10-14 stiga hiti og nice. Fékk mér gammeldags ís með sultetoj... smjett smjatt... Seinnipart sunnudags hitti ég svo Peter, vin minn sem var skiptinemi hérna í HR síðustu önn. Skelltum okkur á kaffihús og röltum um miðbæinn (sbr. túristamyndirnar, hehe). Fór svo aftur til Ellu minnar í Malmö um kvöldið. Hún var búin að vera hamast við að skrifa ritgerð, þannig að við vorum báðar frekar lúnar. Fengum okkur bara kveldmat og leigðum video. Mjög nice Lenti á klakann rúmlega tvö í gær. Kom aðeins við heima og svo beint á námskeiðið. Búið að vera svolítið þétt prógramm eeen alveg últra-mega-gaman Reyndar alveg týpískt hvernig allt þarf að lenda á sömu helginni! Það var ekki bara reynsluflug og reunion heldur var líka kosningakvöld hjá okkur í HR á fös. kvöldinu sem ég missti af. Ég bauð mig reyndar fram í málfundafélagið með Þórunni og co. og náðum auðvitað kjöri, hihi
Djííís hvað heimurinn er lítill!! Er nákvæmlega núna að tala við Erlu sis á msn og hún var að spyrja: ,,hver var þessi strákur í rauða dúnvestinu sem þú varst að labba með á Strikinu ???????'' ...''ehmmm það var hann Peter''... Ég skyldi ekkert í því hvernig hún vissi þetta og hún reyndi að sannfæra mig um að hún hefði farið inn á ''vefmyndavélina'' á Strikinu og séð okkur þar. En nei nei, málið er víst að vinkona hennar úr Stykkishólmi var líka í Köben þessa helgi og sá mig þarna á röltinu með Peter. úfff!! Eins gott að passa sig, hehe :Þ
Það er örugglega enginn sem nennir að lesa þetta langa blogg...? heheheh
Er að setja myndirnar frá helginni á netið
Ciao í bili
006... ''Coffee, tee or me?''
28. mars 2007 klukkan 00:29
Drífa Friðriksdóttir 7 athugasemdir
Nákvæmlega mánuður frá síðasta bloggi enda með eindæmum öflugur bloggari hér á ferð! Ýmislegt skrautlegt og skemmtilegt hefur á dagana drifið þennan mánuð. Hreystimennið ég verð þó að viðurkenna að hafa orðið lasin í lok febrúar og gat ekki mætt í skólann í nokkra daga. Læknarnir mínir, Johny og daddy, vildu meina að þetta hefði verið einkirningasótt. Hálskirtlarnir bólgnuðu og ummynduðust í frekar ólekker eystu. Ég er alveg viss um að þeir hafi náð stærð á við eystu, allavega japönsk, hehe . Pabbi vildi reyndar meina að sem fóstur hefði ég verið myndar-drengur en eystun bara aldrei gengið niður. Ahh... ég var ekki alveg að kaupa það! hehe...
Mánudaginn í síðustu viku byrjaði ég á námskeiði fyrir verðandi flugfreyjur/flugþjóna hjá Icelandair. Mikið stuð og skemmtilegt fólk sem ég er með í hóp. Næstu helgi fer ég svo í fyrsta reynsluflugið. Ég fer sennilega (vonandi) á föstudeginum og líklegast förum við í flug til London eða Köben.
Svo er EXPO-REUNION næstu helgi líka!!! Hlakka mikið til enda löngu farin að telja niður, hehe. En þar sem reynsluflugið er á föstudeginum þá fer ég ekki fyrr en snemma á laugardeginum. Það er semsagt möguleiki á að ég fari 2x til Köben á einni helgi! Ekki slæmt, thihi... Allavega tvær flugferðir á einni helgi
Ella, norsk vinkona mín, býr í Malmö og ég fæ að vera hjá henni yfir Reunionið sem verður á föstudeginum í Köben en laugardeginum í Malmö. Hlakka mikið til að hitta hana aftur en ég hef ekki séð hana síðan á Grænlandi 2004. Djíís hvað tíminn líður hratt!!
Í gærkvöldi var Þóra litla í pössun hjá okkur og svo skrapp ég aðeins út að borða með Láru Björg og co. en sleppti öllu djammi, enda ekki hægt að eyða tíma/orku í það núna. Í dag fór ég svo á kaffihús með vinkonum mínum, og svo kom Erna skvís og Nick, ástralski kærasti hennar, í heimsókn. Ótrúlega gaman að sjá þau aftur, en við Erna vorum að vinna saman úti í Japan. Þau kynntust þarna úti á Expo og eiga nú von á barni, sem b.t.w á að koma í heiminn í byrjun maí . Ég vona að það sé ekkert að flýta sér, enda er 19 maí besti dagurinn til að fæðast!! hehe
Ég skilaði inn skattframtalinu áðan. Rosalega þægilegt að vera aumingi sem á ekki neitt. Ég gerði eiginlega ekki mikið meira en að ýta á ''senda'', afar hentugt, hehe
Það eru víst bara c.a. 2 vikur í lokapróf!! Fyrsta prófið er 11. apríl.....sjitt !
Best að fara og massa lærdóminn!
kveðja - 006
18. mars 2007 klukkan 23:06
Drífa Friðriksdóttir 3 athugasemdir
18febrúar
Árshátíð Lögréttu var haldin síðasta fimmtudag! Þar var mikið stuð og miiikið súkkulaði Ég var reyndar með hita (sem er mjög skrítið þar sem ég verð aldrei lasin) en svo fór ég að pæla í þessu og tjahh... það er kannski ekki skrítið að líkamshitinn hafi farið að stíga elítið daginn fyrir árshátíð. Ég er bara svona naturally hot Það að læsast inni á baði eða fá smá hita stöðvar mig allavega ekki í að fara og skralla En ég var bara edrú og teygaði súkkulaðigosbrunninn í staðinn fyrir áfengi... smjettsmjatt... svo var líka þessi fíni súkkulaðibúðingur í desert.
Dagurinn eftir gekk frekar brösulega, svona allavega seinni partinn. Eldaði tortilla lasagne fyrir 10 (ekki 10 manns heldur mig 10 sinnum í nesti). Hagsýn sko! En þá þurfti að fara út með ruslið og skreppa út í sjoppu (smá fráhvarfseinkenni eftir súkkulaðibrunninn)..... Þegar ég kem heim tek ég upp lyklakyppuna mína og LYKILLINN að húsinu er ekki á... obobobbb... Ég hafði nebblega tekið hann af og stungið í veskið áður en ég stökk á árshátíð eeeeen gleymt að setja á aftur... Svo ég stóð þarna læst úti eins og bjáni með hita og hálsbólgu...buhuhu Enn og aftur barst hjálpin frá galvöskum björgunarsveitarmeðlim úr Hafnarfirði og kann ég honum bestu þakkir fyrir!
Búin að kaupa flugmiða til Köben! 32 dagar í brottför...
ciao 006
p.s. árshátíðarmyndirnar komnar inn
18. febrúar 2007 klukkan 23:20
Drífa Friðriksdóttir 1 athugasemd
Hvað er að gerast? Það hefur verið princippið að blogga bara þegar ég er í útlöndum ! Nú eru þegar liðnir 15 mánuðir síðan ég kom heim frá Japan og reisunni minni til Svalbarða og allt það!! Það lengsta sem ég hef komist þetta rúma ár er að skutla fólki upp á Leifstöð og keyra grátandi heim Þó er ekkert að óttast.... I've got my plans Við sem vorum að vinna saman á Expo í Jap. 2005 höfum reunion á hverju ári. Í fyrsta skipti var það haldið hér á fróninu (myndir á síðunni) en næst verða herlegheitin í kóngsins Køben þar sem ég ætla ekki að láta mig vanta!! Þetta er helgin 23.-26. mars svo það eru ''bara'' 43 dagar þangað til. Getur meira að segja verið að ég hitti nokkra vini frá því á Grænlandi líka, mikil tilhlökkun !!
Fyrir þá sem ekki vita er kjellingin á 2. önn í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og líkar bara vel. Ákvað að taka grunnnámið hérna heima en framtíðardraumar um fjarlægar slóðir... jújú, nóg af þeim!!
Ég er alltaf jafn heppin sama hvar á hnettinum ég er! Laugardagskveldið fyrir viku lenti ég í því óhappi að læsast inni á baði. Dyrahúnninn var bilaður (eitthvað stykki brotið inní) og ég gleymdi því. Trítlaði inn á bað og lokaði.... obobbobb.. En hjálpin barst frá galvöskum björgunarsveitarmeðlim úr Hafnarfirði !!.. svo ég slapp nú við að stökkva alsber útum gluggann, svelta í hel eða.... æjj iss hefði nú alveg getað brotið upp helv.. hurðina Þannig fór nú um sturtuferð þá, eeen mætti samt samviskusamlega galvösk á djammið!
Árshátíð lagadeildarinnar eftir viku! gaman gaman
bye for now my darlings..
yours, 006
p.s. planið að setja inn nýjar myndir... p.s.s búið að skrúfa ónýta hurðahúninn af
08. febrúar 2007 klukkan 00:55
Drífa Friðriksdóttir 10 athugasemdir